Framsókn nr. 1 framsókn nr.2 framsókn
nr. 1,2,3,4,5,6.... osfrv. hefur eflaust einhvern tímann heyrst
EN í dag? Nja frekar, er einhver í framsókn? Fyrsta boð! Annað
boð? Þriðja boð ?!? Engin sem býður sig fram! Jæja náum þá bara
í rútuna og förum uppá elliheimili að smala! Svona get ég
ímyndað mér að framsókn muni haga sér á sjálfan
kosningardaginn.
Ég og eflaust margir aðrir hafa vellt
því fyrir sér afhverju framsókn mælist með svona lítið fylgi í
skoðunarkönnunum miðað við það sem þeir fá svo í kosningum og ég
held að ég hafi fundið svarið!!! Er það ekki bara vegna þess að það
vill nánast enginn viðurkenna það fyrir nokkrum manni að hann/hún
ætli að kjósa framsókn og nýti sér því hina miklu leynd sem er í
kjörklefanum!?!? Aldrei myndi ég viðurkenna það allavega og þetta
getur útskýrt þann mun sem er á fylgi framsóknar í könnunum og svo
á sjálfan kjördag.
Undanfarið hafa skoðannakannarir leitt
það í ljós að fylgi framsóknar er að hverfa miðað við gamla tíma. Í
vestmannaeyjum mælist fylgið 2.8% , og á suðurlandi er það svo
farið úr rétt tæpum 24% í tæp 12% og það í einu “sterkasta” vígi
framsóknar og það sem kemur sérstaklega á óvart er að þetta er
ríkidæmi Guðna Ágústsonar! Kannski hefur Árni J. bara
meiri persónutöfra hver veit. Þess má einnig geta að fylgið er ekki
bara að hrynja á suðurlandi því norð-austur kjördæmið virðist vera
að snúast all rosalega frá framsóknarmönnum og ná þeir skv.
skoðannakönnun “aðeins” inn einum manni en áður voru það þrír menn!
Magnað!
Þegar ég hugsa um þau
málefni sem framsókn leggur mesta áherslu á þá er það fyrsta sem
mér dettur í hug auglýsing þeirra um að setja ekki stopp á
stóriðju... ágætt málefni en þeir verða nú að átta sig á því að
stóriðja er ekki eina leiðin til að halda hagvexti og svo annað að
það er ekki alltaf hægt að hafa bullandi hagvöxt og þenslu!
Einhvern tímann þarf hagkerfið að kólna og snýst góð hagstjórn útá
það að hafa hagsveiflurnar sem minnstar en ekki að hafa ENGAR
hagsveiflur! Þeir/þær læra þetta vonandi áður en þau
verða öll komin á elliheimili. Ennfremur er hægt
að treysta þeim til að vera í ríkistjórn? Láta þeir ekki undan öllu
sem hinn flokkurinn segir og gerir? Mitt svar er nei, enda munu
framsóknarmenn ekki segja STOPP er það nokkuð? Einnig eru þeir
búnir að missa viltasta þingmanninn og það boðar nú aldrei
gott.
Önnur málefni sem framókn hefur í
fyrirrúmi eru í sjálfu sér ágæt en eins og ég hef áður minnst á þá
eru þetta flest öll loforð sem er ekkert víst að framsókn eða annar
flokkur standi endilega við! Einnig þá leiða öll loforð ekki til
góðs og er þá gott að minnast á loforð framsóknar um hærri lán
íbúðarlánasjóðs til íbúðarkaupa! en ef ég man það rétt þá var
lánshlutfallið hækkað í 90% og má benda á það sem einn af
orsakavöldum þess að íbúðarverð og verðbólga rauk upp!
Magnað....
Þau málefni sem ég fann á síðu þeirra er
t.d.:
Lækka vsk af lyfjum og barnavörum:
Jákvætt en þó tekjuskerðandi fyrir ríkið.
Hækka aldur vegna tannverndar til
18:Jákvætt en þó tekjuskerðandi fyrir tíkið
Sveigjanleg starfslok á vinnumarkaðnum:
vel útskýrt humm....
Lengja fæðingarorlof í 12 mánuðuði:
eigum við ekki bara alltaf að vera í orlofi?
Lán íbúðarlánasjóðs miðuð við
fasteignarmat í stað brunabótarmats: Myndi fara varlega að breyta
kerfinu aftur, gæti skapað ennfrekari hækkun á
húsnæðisverði!
Gjaldfrjáls leikskóli: Sér ríkið um
rekstur leikskóla? Nei hélt ekki...
Vaxta og húsaleigubætur verði hækkaðar:
heyr heyr, hvað kostar það samt?
Leita leiða til að auka nýliðun í
bændastétt: JESS loksins!
Byggja fangelsi: fangelsum sem flesta í flottum
fangelsum
Ofl sem hægt er að kynna sér en held ég
sé komin með nóg enda er þetta bara brot af þeim loforðum/stefnum
sem þeir setja fram! Magnað!
Endilega kynnið ykkur flokkinn betur á:
framsokn.is eða eins og ég vil kalla síðuna
elliheimili.is
Niðurstaða: Elsti flokkur landsins sem
er að deyja út, er í dauðakippunum en reynir þó að kaupa atkvæði
með loforðum og hræðsluáróðri um að ekki megi segja Stopp! Nýr
formaður sýnir greinilega hvernig flokkurinn er þ.e. gamall og
líflaus.....
Fær max 13% og mun EKKI vera í
ríkistjórn eftir þetta kjörtímabil þrátt fyrir að “stjórnin” haldi
velli!
Ég vil endilega fá komment frá þeim sem
lásu hingað niður enda sýnir það hvað þeir hafa ekkert annað með
tíman að gera!
Svo að lokum þá er gott að koma með smá
Guðna: þar sem framsóknarmaður er, þar er gaman! þar sem 2
framsóknarmenn koma saman, þar er party! Þar sem fleiri
framsóknarmenn koma saman, þar er kirkjugarður!
Næst er það Frjálslyndi flokkurinn, lofa
þó engu hvenær sú umræða kemur enda er ég upptekin
maður...